Styrkir til félagsmanna

Félagsmenn Einstakra barna eiga kost á styrk frá félaginu að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Einn styrkur er veittur fyrir hverja fjölskyldu í félaginu óháð fjölda „einstakra“ barna í fjölskyldunni.

Skilyrði fyrir styrkveitingum:

  • Umsækjandi er félagi í Einstökum börnum, nýir félagar hafa sama rétt að uppfylltum sömu skilyrðum.
  • Félagasgjald ársins og félagsgjöld fyrri ára eru greidd að fullu.
  • Kvittanir eru dagsettar á umsóknarárinu, ekki eru veittir styrkir fyrir fyrri ár.
  • Umsóknarréttur tilheyrir lögheimili barns.

Félagsmenn geta fengið einn styrk á ári til orlofs eða heilsueflingar.  Styrktartímabilið er 1. janúar - 10. desember ár hvert.  

Ekki er hægt að sækja um styrk eftir að styrktartímabili er lokið. 

Síðasti dagur til að skila inn umsókn er 10. desember ár hvert.

Styrkir eru greiddir út  fjórum sinnum á ári, í kringum 15. mars, 15. júní, 15. september og 15. desember

Umsækjendur þurfa að skila inn rafrænum umsóknum fyrir 28. febrúar, 30. maí, 30. ágúst eða 10. desember  umsóknarárið, ásamt öllum fylgiskjölum sem óskað er eftir í viðhengi en ekki í tölvupósti. 

Rangt útfyllt umskókn eða umsókn með ófullnægjandi gögnum lendir á „villu“ í tölvukerfinu og kemur því ekki til álita við styrkveitinguna. Því er brýnt að vanda vel til verks, gæta þess að öll skilyrði fyrir styrk séu uppfyllt og senda öll umbeðin gögn rafrænt með umsókninni. 

Allar styrkveitingar eru háðar fjárhag félagsins hverju sinni. Stjórn hefur heimild til þess að breyta styrkfjárhæð án fyrirvara. 

Félagið styrkir ekkert sem almannatryggingakerfið greiðir fyrir, að hluta til eða öllu leyti.

Ef vafi leikur á að umsókn sé gild er henni vísað til stjórnar.

Styrkir sem bjóðast:

1. Orlofsstyrkur

Félagið greiðir styrk vegna útlagðs kostnaðar við bílaleigubíla, sumarbúðir, hóteldvöl, flugferðir og leigu á sumarbústað. Styrkurinn er greiddur eftir að ferð hefur verið farin.

Umsóknina skal senda inn rafrænt ásamt viðeigandi kvittunum eða fylgiskjölum og uppfylla þarf öll skilyrði umsóknar eins og lýst er hér að ofan. Fjárhæð styrks er allt að 50.000 krónur.

Eða 

2. Heilsueflingarstyrkur

Á hverju ári getur hver fjölskylda innan félagsins sótt um styrk vegna almennrar heilsueflingar.  Undir þennan styrk fellur viðkennd þjónusta, t.d. sjúkranudd, iðjuþjálfun, sálfræðiþjónusta, íþróttaiðkun hjá viðurkenndu íþróttafélagi og jóga.  Kvittanir verða að fylgja frá viðurkenndum meðferðaraðilum. Upphæðin er allt að 50.000 krónur.

3. Tómstundastyrkur

Rétt á Tómstundastyrk eiga börn í félaginu sem hafa legið samfleytt í  þrjár vikur, 21 dag, á sjúkrahúsi  á Íslandi.  Styrkurinn er hugsaður til kaupa á afþreyingu fyrir barnið.  Staðfesting læknis á sjúkrahúsdvöl skal fylgja umsókn. Styrkurinn er 15.000 krónur og er veittur einu sinni á ári.

Umsóknin er rafræn og þarf að uppfylla öll skilyrði fyrir styrknum.

Tómstundastyrkurinn er sérstakur styrkur og hefur ekki áhrifi á rétt til heilsueflingar -/orlofsstyrks.

Tekið verður við umsóknum um Tómstundastyrk til 10. desember ár hvert. 

 4. Styrkur vegna gistikostnaðar innanlands fyrir þá sem sækja læknisþjónustu í Reykjavík utan af landi

Hægt er að sækja um styrk vegna gistingar ef um ræðir langferð frá heimili barns til rannsókna eða læknismeðferðar.  Mikilvægt er að safna saman kvittunum fyrir kostnaði og senda inn einu sinni á ári. 

Gistináttastyrkurinn er sérstakur styrkur og hefur ekki áhrif  á rétt til heilsueflingar -/orlofsstyrks.

Styrkur getur numið allt að 4000 krónur á nótt fyrir fjölskyldu.  Styrkurinn getur verið fyrir allt að 10 gistinætur,  á tímabilinu 1. janúar til 10. desember.

Forsendur fyrir gistináttastyrk:
  • Barn þarf að fara í langferð til að fá læknisþjónustu.
  • Kvittanir fyrir gistingu þurfa að fylgja rafrænni umsókn.
  • Staðfesting frá lækni á skoðun/meðferð skal fylgja umsókninni.

*Nánari upplýsingar um styrkina fást á skrifstofu félagsins í síma 568-2661

Sækja um styrk 

AHT!  Framvísa skal frumritum reikninga rafrænt með umsóknum um alla styrki sem félagið veitir. Styrkir vegna ferða eru greiddir eftir að ferð er lokið.

Styrkir félagsins eru hugsaðir til að mæta kostnaði sem fellur ekki undir styrki frá öðrum aðilum, svo sem Tryggingastofnun ríkisins.

Samþykkt á vinnufundi stjórnar þann 10. maí 2025.