Samþykki
Yfirlýsing umsækjanda
Undirritaður aðili óskar hér með eftir aðild að félagasamtökunum Einstök börn – Landssamtök barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma eða sjaldgæf heilkenni (hér eftir nefnt „félagið“), kt. 570797-2639.
Ég staðfesti að hafa kynnt mér lög félagsins og skuldbind mig til að hlíta þeim í hvívetna, sem og öðrum reglum sem stjórn félagsins kann að setja og eru í samræmi við lög og samþykktir félagsins.
Ég skuldbind mig jafnframt til að sýna starfsmönnum, stjórnarmönnum og öðrum félagsmönnum virðingu í öllum samskiptum. Ég mun leitast við að stuðla að jákvæðu og uppbyggilegu andrúmslofti innan veggja félagsins og forðast hvers kyns framkomu sem getur talist meiðandi, ógnandi eða niðurlægjandi.
Ég er meðvitaður/meðvituð um að með aðild fylgja þau réttindi og skyldur sem nánar er kveðið á um í lögum félagsins, þar með talið skylda til greiðslu félagsgjalda, sé þeim til að dreifa.
Mér er jafnframt kunnugt um að alvarleg og ítrekuð brot á lögum, samþykktum, siðareglum félagsmanna og öðrum reglum félagsins sem kunna að gilda hverju sinni, þar á meðal vegna óviðeigandi framkomu eða samskipta, geta leitt til brottrekstrar úr félaginu. Þá áskilur félagið sér rétt til að synja um félagsaðild eða að útiloka félagsmenn sem ekki fara að lögum, samþykktum, siðareglum félagsmanna og öðrum reglum félagsins eða brjóta gegn markmiðum þess með einum eða öðrum hætti.
Samþykki fyrir vinnslu persónuupplýsinga
Ég veiti félagasamtökunum Einstökum börnum hér með samþykki mitt fyrir vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem fram koma í þessari umsókn og þeirra upplýsinga sem nauðsynlegar eru til að halda utan um félagsaðild mína. Vinnslan er nauðsynleg til að uppfylla skyldur félagsins gagnvart mér sem félagsmanni, svo sem vegna útsendingar upplýsinga, innheimtu félagsgjalda og til að tryggja réttindi mín innan félagsins.
Mér er kunnugt um að ég get hvenær sem er afturkallað samþykki þetta, þó það hafi ekki áhrif á lögmæti vinnslu sem fram fór áður en til afturköllunar kom. Slík afturköllun kann að hafa áhrif á félagsaðild mína. Nánari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga má finna í persónuverndarstefnu félagsins.
Staðfesting
Ég staðfesti að allar upplýsingar sem veittar eru í umsókn þessari eru réttar og sannleikanum samkvæmar. Ég staðfesti jafnframt og samþykki allt framangreint við inngöngu í félagið