Réttindagæslumenn fatlaðs fólks

Þann 30. september 2011 tóku gildi lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Markmið laganna er að tryggja fötluðu fólki, sem þarf stuðning vegna fötlunar sinnar, aðstoð til að gæta réttinda þess við hvers konar réttindagæslu.

Á vef stjórnarráðsins segir að fatlaður einstaklingur geti leitað til réttindagæslumanns með hvað eina sem varðar réttindi hans, fjármuni og önnur persónuleg mál. Einnig getir fólk sem telur að brotið sé á réttindum fatlaðs einstaklings tilkynnt það réttindagæslumanni. Réttindagæslumanni ber auk þess að vera sýnilegur og standa fyrir fræðslu fyrir fatlað fólk og þá sem starfa með því.

 Nánari upplýsingar um réttindagæslumenn og réttindagæslu eru á vef Stjórnarráðsins.