Karfan er tóm.
- Félagið
- Réttindi
- Samantekt fyrir foreldra
- Réttindamál
- Hjálpartæki
- Fjármál
- Húsnæði
- Lög og lagaleg málefni
- Vefverslun
- Styrkja félagið
- Tillögur
- Skráning á viðburði
- Greiningar innan félags
Velferðarsjóður barna hefur ákveðið að veita félaginu Einstök börn styrk til að styðja við starf Drekahóps, sem er faglegt stuðningsúrræði fyrir yngstu börnin og fjölskyldur þeirra. Stuðningurinn byggir á reglulegu hópastarfi þar sem börn, foreldrar og systkini fá stuðning við hæfi undir leiðsögn fagfólks.
Einstök börn eru stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma og sjaldgæf heilkenni. Um 900 börn og fjölskyldur þeirra njóta þjónustu félagsins í formi ráðgjafar, fræðslu og stuðnings. Þegar fjölskyldur barnanna eru taldar með nær starfsemi félagsins til um 4.500 einstaklinga.
Þrátt fyrir að sinna mikilvægu hlutverki í þágu barna með flóknar og krefjandi aðstæður nýtur félagið ekki reglubundins stuðnings af fjárlögum. Styrkurinn mun styrkja starfsemi félagsins og stuðla að áframhaldandi þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra.
Ef þið viljið lesa alla fréttina er hún á síðu Velferðasjóðs Barna
Opnunartími
Mánudaga til fimmtudaga kl 10- 15 og opið föstudaga 10-13.
Styrktarreikningur:
kt. 570797-2639, banki 0513-14-1012
Styrkir einstaklinga og fyrirtækja til almannaheilla eru frádráttarbærir til skatts.