Siðareglur félagsmanna Einstakra barna

Siðareglur félagsmanna Einstakra barna

Siðareglur félagsmanna

1. grein – Tilgangur og gildissvið

Tilgangur þessara siðareglna er að stuðla að farsælu og uppbyggilegu starfi innan Einstakra barna. Reglurnar eiga að tryggja að öll samskipti og starfsemi á vegum félagsins einkennist af virðingu, jafnræði, heilindum og réttindum barnanna.

Allt starf og framkoma félagsmanna skal ávallt hafa hagsmuni barna með sjaldgæfa sjúkdóma að leiðarljósi.

Reglurnar gilda fyrir alla félagsmenn Einstakra barna og eiga við í öllu starfi á vegum félagsins, þar með talið á fundum, viðburðum, í rafænum samskiptum (svo sem á samfélagsmiðlum og í tölvupósti) og hvers kyns annarri framkomu sem tengist félaginu.

2. grein – Almennar hegðunarreglur

Félagsmönnum ber að sýna öllum einstaklingum, þar á meðal öðrum félagsmönnum, fjölskyldum, starfsfólki félagsins, stjórnarmönnum og samstarfsaðilum, fyllstu virðingu og tillitssemi í öllum samskiptum. Forðast skal hvers kyns framkomu sem getur talist meiðandi, ógnandi, niðurlægjandi eða á annan hátt óviðeigandi. Óviðeigandi framkoma, áreitni eða einelti er með öllu óheimil. Félagsmenn skulu leitast við að stuðla að jákvæðu og styðjandi andrúmslofti innan félagsins.

Einnig skulu félagsmenn gæta jafnræðis og koma eins fram við alla, óháð aldri, kyni, kynþætti, kynhneigð, fötlun, stjórnmálaskoðunum, uppruna, trúarbrögðum eða félagslegri stöðu. Öll mismunun er óheimil.

Jafnframt skulu félagsmenn gæta fyllsta trúnaðar um persónulegar upplýsingar og viðkvæm málefni sem þeir kunna að verða áskynja um í gegnum starfsemi félagsins, hvað varðar aðra félagsmenn, fjölskyldur þeirra og börn. Óheimilt er að deila slíkum upplýsingum með óviðkomandi aðilum. Þagnarskylda gildir um allar viðkvæmar persónuupplýsingar, svo sem heilsufarsupplýsingar, fjárhagsmál og fleira, í samræmi við ákvæði laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Þessi trúnaðarskylda helst eftir að félagsaðild lýkur.

Eins skulu félagsmenn forðast að lenda í aðstæðum þar sem persónulegir hagsmunir rekast á við hagsmuni félagsins. Félagsmaður skal ekki taka þátt í umræðu eða ákvörðun mála þar sem slíkir hagsmunaárekstrar eru til staðar.

Þá skulu félagsmenn hlíta lögum félagsins, samþykktum og öðrum reglum sem stjórn félagsins setur. Félagsmenn bera ábyrgð á að kynna sér gildandi reglur.

3. grein – Rafræn samskipti

Í rafænum samskiptum á vegum félagsins, svo sem á lokuðum hópum á samfélagsmiðlum, skulu félagsmenn gæta sérstaklega að ákvæðum 2. gr. um virðingu og trúnað. Óheimilt er að dreifa efni úr lokuðum samskiptahópum félagsins til utanaðkomandi.

4. grein – Viðbrögð við brotum

Brot á siðareglum þessum geta varðað viðurlögum. Stjórn félagsins tekur við ábendingum um meint brot og fjallar um þau í samræmi við lög félagsins.

Alvarleg eða ítrekuð brot á siðareglum, lögum, samþykktum eða öðrum reglum félagsins geta leitt til brottvísunar úr félaginu, í samræmi við heimild í 8. gr. laga nr. 110/2021 um félög til almannaheilla og eins og kveðið er á um í yfirlýsingu vegna umsóknar um félagsaðild. Ákvörðun um brottvísun skal tekin af stjórn félagsins.

5. gr. – Gildistaka og endurskoðun

Siðareglur þessar öðlast gildi strax við samþykkt stjórnar Einstakra barna. Stjórn skal endurskoða reglurnar eftir þörfum.

 

Samþykkt af stjórn Einstakra barna 15. apríl 2026