Sumarhátíð 2016

Félagið hélt frábæra sumarhátíð þann 25 júní síðastliðinn. Fjölbreytt dagskrá var í boði og gátu allir fundið eitthvað við sitt hæfi.

Gunni Helga og Jói komu og skemmtu, Daníel töframaður sýndi börnunum töfrabrögð og Píla Pína mætti og söng með krökkunum.

Einnig var hægt að fara á hestbak ( reidtur.is ) Loftboltar.is- skopp.is og grillvagninn - lögðu félaginu lið með sínu framlagi ásamt fleiri góðum fyrirtækjum og kunnum við öllum einstakar þakkir fyrir allt.

Dagurinn var virkilega skemmtilegur og fjörugur fyrir börnin sem fóru alsæl heim með bros á vör.

Takk fyrir allir sem lögðu okkur lið við að búa til svona einstaklega góðan dag fyrir börnin og gefa þeim færi á að upplifa og prófa eitthvað sem  er ekki á þeirra færi alla aðra daga.      Samfélagslegur stuðningur einstaklinga og fyrirtækja er starfsemi Einstakar barna virkilega mikilvægur svo hægt sé að styðja við fjölskyldurnar á margan hátt - skapa skemmtilegar minningar og efla fræðslu félagsins innan og utan félagsins.

.