Páskabingó 2016

Börnin fengu páskaegg að gjöf eftir Bingó
Börnin fengu páskaegg að gjöf eftir Bingó

Páskabingó var haldið  þann 5 mars síðastliðinn við mikla gleði barnanna.  Spilaðar voru 13 raðir af Bingó og öll börnin sem mættu í bingó fengu síðan páskaegg með sér heim.  Allir mættu með eitthvað gómsætt á sameiginlegt kaffiborð.

Félagið fékk afnot af húsnæði Norðlingaskóla en skólinn hefur gott aðgengi og rýmið þægilegt fyrir alla.

Páskabingóið er árlegur viðburður félags Einstakar barna, þökkum við stuðningsaðilum og öllum þeim sem hjálpuðu við að gera þetta að raunveruleika fyrir börnin kærlega fyrir.