Karfan er tóm.
- Félagið
- Réttindi
- Samantekt fyrir foreldra
- Réttindamál
- Hjálpartæki
- Fjármál
- Húsnæði
- Lög og lagaleg málefni
- Vefverslun
- Styrkja félagið
- Tillögur
- Skráning á viðburði
- Greiningar innan félags
Ágóðinn af Bókmenntahátíð barnanna
Nemendur Reykjahlíðarskóla í Mývatnssveit tóku þátt í verkefninu Bókmenntahátíð barnanna í desember 2025. Þetta var samvinnuverkefni milli fjögurra skóla á Norðurlandi; Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit, Valsárskóla á Svalbarðseyri, Reykjahlíðarskóla og Stórutjarnaskóla í Þingeyjarsveit.
Nemendurnir skrifuðu barnabók, hönnuðu bókarkápu og teiknuðu myndir í bókina. Þegar bók er gefin út þarf að sjálfsögðu að stofna bókaforlag fyrir útgáfuna og að útbúa merki forlagsins. Í Reykjahlíðarskóla var bókaforlagið Dimmuborgir stofnað og voru 11 ólíkar bækur fyrir börn gefnar út. Þær voru seldar á Bókmenntahátíð barnanna að Hrafnagili og svo var haldin lítil hátíð í Reykjahlíðarskóla fyrir íbúa Mývatnssveitar.
Verkefnið fékk styrk úr Sprotasjóði en rithöfundarnir Berglind Erna Tryggvadóttir og Þórunn Rakel Gylfadóttir höfðu yfirumsjón með verkefninu. Þær stöllur voru bæði nemendum og kennurum til halds og trausts við vinnslu bókanna.
Ágóðinn af sölu bókanna var nýttur til kaupa á bókum fyrir bókasafn skólans og til kaupa á spilum fyrir nemendur skólans. Einnig var farin dagsferð til Akureyrar þar sem nemendur áttu saman góðan dagspart. Einstök börn var það góðgerðarfélag sem nemendur völdu til að styrkja og um leið að láta gott af sér leiða.
Halla Rún Tryggvadóttir, kennari skrifar.
Við hjá Einstökum Börnum þökkum þaim fyrir stuðningin og flott starf hjá nemendum jafnt og kennurum!
Takk enn og aftur!
Opnunartími
Mánudaga til fimmtudaga kl 10- 15 og opið föstudaga 10-13.
Styrktarreikningur:
kt. 570797-2639, banki 0513-14-1012
Styrkir einstaklinga og fyrirtækja til almannaheilla eru frádráttarbærir til skatts.