Kæra samfélag

Kæra samfélag 🩵
Við viljum senda ykkur öllum okkar innilegustu þakkir fyrir ótrúlega þátttöku í Glitrandi vitunarvakningu okkar 🩷
Tugþúsundir glitruðu um allt land fyrir börn með sjaldgæfa sjúkdóma. Þið klæddust, deilduð, mættuð, keyptuð af okkur vörur og studduð okkur á svo fjölbreyttan og fallegan hátt. Við gætum einfaldlega ekki verið þakklátari 💜
Við viljum þakka öllum þeim fyrirtækjum, félagasamtökum og íþróttahreyfingum sem hafa lagt sitt af mörkum. Sá stuðningur skiptir gríðarlega miklu máli og gerir okkur kleift að halda áfram að byggja upp öflugt starf fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Einnig viljum við þakka þeim fyrirtækjum og aðilum sem hafa sett lógó sitt á heimasíðu okkar og þannig sýnt í verki að þau standa með okkur og ýta okkur áfram 💚
Sérstakar og innilegar þakkir færum við Kiwanis á Íslandi fyrir að standa þétt með okkur í okkar baráttu. Slíkur stuðningur skiptir sköpum 🩷
Viðbrögð fjölmiðla við umfjöllunum um stöðu barna og ungmenna innan félagsins hafa einnig verið ómetanleg. ALLIR lögðust á eitt til að koma málefninu á framfæri. Það skapar umræðu. Það vekur athygli. Og það hreyfir við málunum 🩵
Við erum þakklát.
Við erum stolt.
Við erum afar glöð.
En við erum líka þreytt eftir þessa törn og það segir sína sögu. Þegar margir leggjast á eitt með okkur, þá kemst raunveruleg hreyfing á málin. Þá glitrar landið og breytingar verða mögulegar.
Takk fyrir að standa með börnum með sjaldgæfa sjúkdóma.
Takk fyrir að glitra með okkur ✨
Með djúpu þakklæti,
Einstök börn Landsamtök 💖