Hannaði jólamerkimiða ásamt dóttur sinni og færði félaginu til sölu

Rakel Ólafsdóttir, hönnuður hjá Sker.is, hefur gaman af því að búa til fallega jólapakka og nostrar gjarnan við þá. 

Hún nýtur aðstoðar 6 ára dóttur sinnar, Sögu Bjarkar Bjarnadóttur, en Saga teiknaði myndir sem Rakel útfærði á merkimiða. Þær völdu sér rómantískt og gamaldags þema við jólapakkana í ár.Sjá alla fréttina á Vísir.   Hér  

Merkimiðarnir eru seldir á skrifstofu félagsins að Háaleitsibraut 13 og eru 6 í pakka og kosta 1200 kr pakkinn.

Hægt er að panta og fá sent með því að senda tölvupóst á einstokborn@einstokborn.is

Sendum við Rakel og Sögu kærar þakkir fyrir þeirra framlag til félagsins þetta eru virkilega falleg merkispjöld.