Stuðningur frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ

Nemendur áfangans í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ ásamt Hafdísi, fulltrúa Einstakra barna sem er þrið…
Nemendur áfangans í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ ásamt Hafdísi, fulltrúa Einstakra barna sem er þriðja frá vinstri í fremstu röð.

Nem­end­ur í áfanganum Viðburðastjórn­un við Fjöl­brauta­skól­ann í Garðabæ stóðu fyrir dósa­söfn­un á dög­un­um fyr­ir Ein­stök börn, stuðningsfélag fyrir börn með sjaldhæfa sjúkdóma og heilkenni þriðja árið í röð!

Söfn­un­in var hluti af loka­verk­efni nem­end­anna sem er til­einkað Félagi Einstakra barna. Nem­end­ur buðust til þess að sækja dós­ir heim til fólks og tóku einnig á móti dós­um frá nem­end­um og starfsfólki við skól­ann. „Söfnunin gekk vonum framar og nemendur áfangans stóðu sig vel. Vonandi fáum við jafn góðar viðtökur á næsta ári.” sagði Ingvar ­Arnarson sem kenn­ir áfang­ann.Hóp­ur­inn safnaði dósunum saman í skólann og hjálpaðist síðan að við að flytja þær í endurvinnslu. Gríðarlega góð samvinna var innan hópsins og nemendur eru ánægðir með afrakstur verkefnisins.

Viðburðurinn hefur verið haldinn síðastliðin tvö ár og vonast er til að hann haldi áfram á næstu árum, en áfanginn er kenndur á hverju vori.

Nemendur Fjölbrautaskólans í Garðabæ benda áhugasömum á að skoða félagið og fara á heimasíðu www.einstokborn.is. Loks hvetja nemendurnir alla til að gerast styrktaraðili Einstakra barna.

Meðfylgjandi mynd er af öflugu nemendunum í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ sem efndu til söfnunar fyrir Einstök börn.

Við hjá Einstökum börnum þökkum nemendunum hlýhuginn og ómetanlegan stuðning.