Foreldar í félaginu frá stuðning í formi afsláttar til heilsuræktar

 

Það er svo gott að eiga góða vini og vildarfyrirtæki. Nú njóta foreldar Einstakar barna sérstakra kjara til þess að sinna líkamsrækt hjá World Class og kunnum við þeim kærar þakkir fyrir það.   Við vitum öll hvað það er mikilvægt að leggja góða rækt við sjálfan sig.

Félagið hefur verið að vinna að því að aðstoða foreldar við að rækta sjálfa sig, líkama sinn og  auka eigin gleði með margvíslegum hætti undanfarið ár og er þetta enn ein viðbótin við það. 

Verið er að vinna í því að athuga hvort einhver heilsuræktarfyrirtæki á landsbyggðinni eru tilbúin í samskonar velvild fyrir foreldra.

Verkefni vikunnar fyrir einstakling í sjálfsrækt :)

Þú getur byrjað á því að huga að sjálfsmynd þinni í hvert sinn sem þú burstar tennurnar. Þú getur spurt þig spurninga á borð við: “hver er ég?” “hvað er ég ánægð/ur með?” og “hvað mætti betur fara?”. Einfaldar spurnignar sem leiða þig áfram í átt að ræktinni sem hentar þinni sjálfsmynd.