Góð gjöf frá Deloitte á Íslandi

Ingibjörg Björnsdóttir, Einstökum börnum og María Skúladóttir, markaðs- og samfélagsmiðlastjóri Delo…
Ingibjörg Björnsdóttir, Einstökum börnum og María Skúladóttir, markaðs- og samfélagsmiðlastjóri Deloitte

Einstökum börnum áskotnaðist myndarlegur styrkur frá Deloitte á Íslandi sem er endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtæki. Deloitte hefur um árabil sleppt því að senda jólakort og þess í stað látið andvirði kortanna renna til góðs málefnis. Í ár valdi fyrirtækið að láta styrkinn renna til Einstakra barna.

Einstök börn þakka Deloitte á Íslandi kærlega fyrir þennan myndarlega styrk og óska þeim gæfu og gengis í framtíðinni.