Einstök börn og Hlaupastyrkur í Reykjavíkurmaraþoni

Hlaupið fyrir Einstök börn 2014
Hlaupið fyrir Einstök börn 2014
Framundan er Reykjavíkurmaraþon og eru Einstök börn að sjálfsögðu skráð þar á meðal Góðgerðarfélaga.

Fjölmargir frábærir einstaklingar hafa nú þegar skráð sig í Maraþon í sumar og ætlar að styðja við bakið á Félagi Einstakar barna. 
Við munum að sjálfsögðu styðja við bakið á þeim. Félagið mun stilla upp hvatningahópum á hlaupaleiðum og fleira spennandi til þess að hvetja sitt fólk áfram.
Nú geta vildarvinir félagssins einnig lagt fram áheit á hlaupara sem ætla að hlaupa fyrir félagið og er það gert inn á hlaupastyrkur. Þú velur félagið Einstök börn og þá sérðu þá sem hafa nú þegar skráð sig í hlaupið og safna áheitum fyrir Einstök börn í ár.

Hægt er að senda inn áheit á hlaupara sem rennur beint til félagsins að hlaupi loknu á þessari síðu  http://www.hlaupastyrkur.is/godgerdafelog/felag/5707972639

Ef farið er neðarlega á síðuna er hægt að sjá alla þá sem hafa skráð sig í hlaupið og munu hlaupa til góðs fyrir Einstök börn, hægt er að heita á hlaupara á vefsíðunni.