Dr. Al Freedman heldur erindi á Málþinginu okkar í tilefni af degi sjaldgæfra sjúkdóma

Við erum afar ánægð að tilkynna að Dr. Al Freedman mun heimsækja okkur og haldaerindi á málþinginu okkar, Þar sem reynsla fær rödd þann 26. Febrúar 2026. Koma hans er mikill heiður fyrir félagið og einstakt tækifæri fyrir foreldra, fagfólk og alla sem starfa með börnum með sjaldgæfa sjúkdóma eða flóknar greiningar til að fáinnsýn frá sérfræðingi með áratuga reynslu.

Dr. Freedman er reyndur sálfræðingur og foreldri sem hefur starfað í yfir 30 ár viðráðgjöf og sálfræðimeðferð fyrir börn, ungmenni, fullorðna og fjölskyldur sem lifameð sjaldgæfum greiningum. Í starfi sínu hefur hann unnið náið með sjúkrahúsum, skólum, ýmsum sjúklingasamtökum og fagfólki sem koma að þjónustu viðeinstaklinga með sjaldgæfa sjúkdóma. Sérstök áhersla hans hefur verið á að styðjafjölskyldur sem eiga börn með sjaldgæfa sjúkdóma og flóknar greiningar og að hjálpaþeim að takast á við þær tilfinningalegu, félagslegu og hagnýtu áskoranir sem fylgjasem og þau jákvæðu og vaxandi tækifæri sem birtast þegar réttur stuðningur er tilstaðar.Einnig hefur hann lagt mikla áherslu á að aðstoða fagfólk og þannig aukaskilning og áheyrn á þarfir og líðan foreldra í þungum umönnunarhlutverkum.

Auk klínískrar vinnu hefur Dr. Freedman starfað sem ráðgjafi fyrir sjúklingasamtök ogfyrirtæki á sviði heilbrigðis og lyfjarannsókna, þar sem hann hefur lagt sitt af mörkumtil að auka skilning á sjónarhorni sjúklinga og fjölskyldna þeirra. Hann hefur haldiðfyrirlestra víða um heim og er þekktur fyrir hlýjan, einlægan og djúpan skilning semsnertir bæði fagfólk og foreldra.

Við hlökkum mikið til að taka á móti Dr. Al Freedman, hlusta á erindi hans á málþinginu okkar og eiga með honum innihaldsríkar samræður. Við erum sannfærðum að erindi hans muni veita bæði innblástur og dýrmæt verkfæri sem nýtast í samskiptum foreldra og fagaðila, dýpka skilning á stöðu hópsins og auka enn frekar á samtal og samvinnu með það að markmiði og leiðarljósi að hlúa að fjölskyldunni semheild.

Fyrir þá sem vilja kynnast störfum Dr Al Freedman betur þá er hér hlekkur á heimasíðu hans:

https://www.freedmancounseling.com/