Medi Teddy umsókn

Tólf ára stúlka, Ella Casano, hannaði Medi Teddy® bangsann fyrir börn sem eru með lyfja- og næringarpoka í gegnum æðaleggi. Einstök börn taka þátt í góðgerðarverkefni um Medi Teddy, þökk sé þremur mæðrum einstakra barna sem söfnuðu fyrir böngsunum. Hugmyndin er að vinalegt andlit bangsans dragi úr kvíða sjúkra barna meðan á innrennsli í æð stendur og geri læknisþjónustuna heimilislegri.

Jákvæð áhrif bangsans á börn komu glöggt fram í könnun sem var gerð á meðal notenda hans:

  • 95% svarenda sögðu að Medi Teddy® bætti tilfinningalega líðan barnsins meðan á innrennsli stóð.

  • 46% svarenda sögðu að Medi Teddy® drægi úr líkamlegum sársauka sem barnið fann við innrennslið í æð.

  • 87% svarenda sögðu að Medi Teddy® bætti upplifun umönnunaraðila.

  • 100% svarenda sögðu auðvelt að nota Medi Teddy®.

Medi Teddy® bangsinn heftir hvorki aðgengi að lyfjapokanum né hylur hann og því er að auðvelt er að fylgjast með vökvanum eða lyfjunum sem barnið er að fá.

Medi Teddy® má þvo í þvottavél í heitu vatni en þó má ekki sjóða hann.

Börn sem eru í Einstökum börnum geta fengið Medi Teddy® án endurgjalds. Til að fá hann sendan heim þarf að fylla út formið hér að neðan. 

Einungis börn í Einstökum börnum geta fengið Medi Teddy?/Only children in Einstök börn can have Medi Teddy
Samþykki